© 2026 Tix Miðasala

Hljómahöll
•
10. júlí
Sala hefst
5. júní 2026, 11:00
(eftir 2 daga)




The Vintage Caravan í Hljómahöll!
Strákarnir eru mjög spenntir fyrir því að spila aftur í Reykjanesbæ og spila í fyrsta skipti í Hljómahöll. Nýjasta plata þeirra, Portals kom út í haust og síðan þá hafa þeir fylgt henni eftir á 4 vikna evrópu og bretlandstúr, haldið smekkfulla útgáfutónleika í Hörpu ásamt því að spila með Bubba Morthens og halda Deep Purple heiðurstónleika. Eftir smá vetrarfrí eru öll batterí full hlaðin og því kraftmiklir tónleikar í Hljómahöll næst á dagskrá!

