Richard Andersson NOR ásamt Anne Efternøler - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

21. - 22. júlí

Miðaverð frá

5.200 kr.

Anne Efternøler, trompet

Óskar Guðjónsson, saxófónn

Richard Andersson, bassi

Matthías MD Hemstock, trommur

Með tærum og næmum tón sem mótast af norrænni angurværð og vel útfærðum eldgosakrafti hefur danska/íslenska tríóið NOR, undir stjórn verðlaunabassaleikarans Richard Andersson, heillað áheyrendur víðs vegar um Skandinavíu á meira en 100 tónleikum undanfarinn áratug. Nú hefur tríóið hafið samstarf við trompetleikarann Anne Efternøler, tónlistarkonu sem býr yfir einstaklega persónulegum tón og ljóðrænni frásagnargáfu sem opnar nýjar leiðir inn í tónlistarheim NOR. Auk Richard skipa tríóið tveir af fremstu jazztónlistarmönnum Íslands, saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson og trommuleikarinn Matthías MD Hemstock.

Tónlist NOR byggir á tónsmíðum Richard og Óskars. Fyrsta plata sveitarinnar Nor, kom út árið 2017 og var fylgt eftir með The Six of Usárið 2018. Báðar plöturnar hlutu afar góðar viðtökur jafnt innanlands sem erlendis. Jazzmiðillinn Salt Peanuts lýsti sveitinni sem „þéttum og samstilltum hópi með sterkt og áhrifamikið samspil, líkt og norræn fjölskylda – prúð, hljóðlát og hlý.“

Árið 2023 kom út platan Undo, sem var tilnefnd til Danish Music Awards Jazz, með framlagi gítarleikarans Hilmars Jenssonar. Með komu Anne Efternøler bætist ný vídd við hljóðheim sveitarinnar og úr verður einstök tónleikaupplifun þar sem nánd, tjáning og samspil eru í forgrunni. Um Efternøler skrifaði Salt Peanuts að hún væri „trompetleikari með tjáningu sem fer beint til hjartans.“

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger