Benjamín Gísli tríó - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

7. - 8. júlí

Miðaverð frá

5.200 kr.

Benjamín Gísli Einarsson, píanó
Birgir Steinn Theódórsson, bassi
Einar Valur Scheving, trommur

Benjamín Gísli Tríó flytur frumsamið efni eftir Benjamín ásamt völdum jazzlögum í nýjum útsetningum. Tónlistin er melódísk og grípandi, einkennist af hlýjum hljómum, opnum köflum og lifandi samspili. Hún hreyfir sig á mörkum norræns djass og klassískrar tónlistar, en býr jafnframt yfir viðnámi og óvæntum beygjum sem draga hlustandann inn í einstakan hljóðheim tríósins. Tríóið gaf árið 2023 út plötuna Line of Thought, sem hlaut alþjóðlega viðurkenningu. Eftir nokkurt hlé hlakkar tríóið til að kynna nýja tónlist fyrir áheyrendum.
Benjamín Gísli Einarsson er einn af fremstu jazz píanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazz menntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu. Hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spuna kenndum köflum í anda Keith Jarrets. Fyrir Benjamín er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, miðla tilfinningum og skapa tengingar við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg, liggur einhvers staðar á milli forms og frelsis, hefða og nýsköpunar, og er alltaf í leit að einhverju nýju.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger