© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
14. apríl
Miðaverð frá
3.900 kr.




Kyrja tekur hið kunnuglega og klassíska og sýnir það í nýju ljósi. Gamansöm lög verða myrk, elektrópopp verður að Gregorískum sálmi og landslag breytist í tónlist. Í höndum Kyrju er tónlist Bjarkar, Sigur Rósar, Júníusar Meyvant, Bubba Morthens, sem og annarra, endursköpuð og aðlöguð að eldri sönghefðum.
Kyrja er íslenskur sönghópur, stofnaður 2022. Meðlimir Kyrju eru allir reynslumiklir atvinnusöngvarar sem vilja víkka út hugmyndir fólks um kórtónlist. Kyrja reið á vaðið með Nótt eftir Árna Þorsteinsson og nýrri og áhrifamikilli útsetningu af Röngum manni eftir Jónas Sigurðsson, en markmið hópsins er meðal annars að setja vel þekkt lög í nýjan búning.
Annað markmið hópsins er að flytja nýja tónlist. Kyrja hefur þegar frumflutt lög eftir Hafstein Þórólfsson og Philip Barkhudarov, og stefnir á að vera leiðandi afl í frumflutningi nýrrar tónlistar og samstarfi við aðra tónlistarmenn úr fjölbreyttum geirum tónlistar. Kyrja og meðlimir hennar hafa unnið með Júníusi Meyvant og Kaleo, sungið inn á tölvuleikinn God of War Ragnarök, en tónlist hans hefur unnið til verðlauna, og komu að auki fram í hinu eftirminnilega Pokalagi í áramótaskaupinu 2022.
Oddvitar Kyrju eru Philip Barkhudarov, Sólveig Sigurðardóttir, Pétur Oddbergur Heimisson, Jón Ingi Stefánsson og Þórhallur Auður Helgason. Aðrir meðlimir eru Bjarni Guðmundsson, Marteinn Snævarr Sigurðsson, Ragnar Pétur Jóhannsson, Stefán Sigurjónsson, Þorkell H. Sigfússon og Þorsteinn Freyr Sigurðsson.

