© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
24. febrúar
Miðaverð frá
3.900 kr.




Á árunum 1912 til 1924 urðu miklar breytingar í stefnum vestrænnar tónlistar.
Í París árið 1913 vakti frumflutningur Vorblótsins eftir Stravinsky fræg ólæti meðal áhorfenda. Árið áður hafði Daphnis et Chloé eftir Ravel verið frumflutt í sömu borg, en bæði verkin voru samin fyrir Ballets Russes undir stjórn Sergei Diaghilev.
Tæpum áratug síðar leitaði Gershwin til bæði Ravels og Stravinskys eftir tónsmíðakennslu, en báðir neituðu. Sagt er að Ravel hafi svarað: „Hvers vegna að verða annars flokks Ravel þegar þú ert nú þegar fyrsta flokks Gershwin?"
Þrátt fyrir ólíkan stíl eiga þessi þrjú verk margt sameiginlegt: þau sækja öll innblástur í dansinn og hreyfinguna, hvort sem það birtist í heiðinni fórn Stravinskys, grískri ástarsögu Ravels eða New York djassheimi Gershwins. Öll eiga þau einnig rætur að rekja til píanósins. Stravinsky lék Vorblótið með Debussy á píanó löngu áður en verkið var flutt af hljómsveit, Ravel samdi Daphnis et Chloé við píanóið, og Rhapsody in Blue var upphaflega skrifað fyrir tvö píanó.
Erna Vala og Romain Þór hafa leikið saman frá árinu 2017 og þau eru alltaf jafn heilluð af því þegar hljómsveitartónlist snýr heim til píanósins.

