Franck, Schumann, Gunnar og Bach

13. júní

Miðaverð frá

3.000 kr.

  Franck, Schumann, Gunnar og Bach  

    Þetta eru fyrstu tónleikarnir í 15:15 tónleikasyrpunni sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju, en flytjendur eru Katrin Heymann þverflautuleikari, Össur Ingi Jónsson óbóleikari og Jón Sigurðsson píanóleikari.


Efnisskrá
César Franck
Fiðlusónata í A-dúr (1886)
úts. fyrir flautu og píanó eftir Pierre Rampal

Robert Schumann
3 Rómönsur Op. 94 (1849) fyrir óbó og píanó

Gunnar Haraldsson
Spíra (2025) fyrir altþverflautu og englahorn

Tríósónata BWV 1039 (1736-41), fyrir tvær þverflautur og basso continuo
úts. fyrir flautu, óbó og píanó af flytjendum

Fiðlusónata César Franck verður hér flutt í útsetningu fyrir þverflautu eftir Jean-Pierre Rampal, en fiðlusónatan var saminn sem brúðkaupsgjöf handa fiðluleikaranum Eugène Ysaÿe og er eitt þekktasta verk sinnar tegundar, og eitt þekktasta verk César Francks. Verkið er úthugsuð listasmíð, þar sem stefin úr fyrsta kaflanum eru notuð sem efniviður í hinum köflum sónötunnar. Tónlistin er stórbrotin, með háum svífandi línum sem njóta sín vel á flautunni, ásamt ótal bitastæðum einleiksköflum fyrir píanóið.
Rómönsur Robert Schumann fyrir óbó og píanó voru samdar sem jólagjöf handa Clöru Schumann. Þær eru vafalaust þekktasta kammerverk fyrir óbó frá þessum tíma, en tónlistin eru angurvær og íhugul, og fer tónblæ óbósins afar vel.
Spíra eftir Gunnar Haraldsson var frumflutt á WindWorks hátíðinni á Akureyri síðasta sumar, en heyrist hér í fyrsta skipti á höfuðborgarsvæðinu. Verkið er fyrir englahorn og altþverflautu og kannar hina dökku hljómblæi hljóðfæranna.
Tónleikunum lýkur með samspili allra hljóðfæranna í tríósónötu BWV 1039 eftir Johann Sebastian Bach. Hún var upprunalega samin fyrir tvær þverflautur og basso continuo en þá flutt á Café Zimmerman í Leipzig, en tónlistin smellpassar inn í kaffihúsastemmingu 18. aldar og vel hægt að ímynda sér að einhver hafi tekið snúning á sónötunni á óbói, sem var algengt hljóðfæri á þeim tíma.
    

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger