© 2026 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
7 sýningar
Miðaverð frá
0 kr.




Margverðlaunað, kraftmikið og einstaklega áhrifamikið nýtt leikrit sem á brýnt erindi
Högg er meistaralega skrifað glænýtt leikrit sem hefur hlotið einstakar viðtökur, meðal annars á West End og á Broadway, eftir hið margverðlaunaða breska leikskáld James Graham. Verkið er byggt á sannri sögu, frásögn ungs manns, Jacobs Dunne sem ólst upp í harkalegu umhverfi í Nottingham í Bretlandi.
Leikritið Högg er byggt á sannri sögu. Líf hins 19 ára gamla Jacobs snýst um djamm, hasar og spennu. Eitt örlagaríkt laugardagskvöld blandar hann sér í ágreining í miðbænum og kýlir ókunnugan ungan mann með skelfilegum afleiðingum. Hann er dæmdur í fangelsi fyrir manndráp og þegar hann er látinn laus blasir fátt annað við en gamla lífernið. Þegar Joan og David, foreldrar unga mannsins sem dó, óska eftir því að fá að komast í samband við Jacob til að spyrja hann nokkurra spurninga byrjar líf hans að taka breytingum sem engan hefði getað órað fyrir.
Högg er einstaklega áhrifamikið leikrit, persónuleg saga sem um leið speglar allan heiminn og fjallar um valið um það hvernig við veljum að lifa lífinu. Verk um blindu, mennsku og möguleikann á breyta lífi sínu til góðs. Verkið hefur hreyft rækilega við áhorfendum og vakið mikilvægar umræður víða.
Sönn saga um átakanlega lífsreynslu og von í myrkri
Leikritið er byggt á bók Jacobs Dunne, Right from Wrong. Verkið er tileinkað James Hodgkinson og öllum sem hafa látið lífið eftir að hafa verið slegnir einu höggi.
Umræður eftir 6. sýningu, auk þess sem boðið verður upp á sérstakar umræðusýningar.
7. sýning textuð á ensku og íslensku.
Leikarar: Jakob Van Oosterhout, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Jónmundur Grétarsson, Kristinn Óli Haraldsson, Selma Rán Lima, Sigurbjartur Sturla Atlason.

