Jólatónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

12. - 13. desember

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sannkölluð hátíðarstund fyrir jólabörn á öllum aldri. Að vanda ríkir hátíðlegur blær í Eldborg þar sem ungir hljóðfæraleikarar og ballettdansarar ásamt einsöngvurum og kórum færa gestum glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Sígildar jólaperlur fléttast saman við klassísk ævintýri sem koma öllum í hátíðarskap. Maxímús Músíkús setur upp rauðu húfuna og trúðurinn Barbara flytur sína alkunnu og hlýju jólahugleiðingu sem snertir streng í hverju hjarta.

Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.

Hljómsveitarstjóri
Nicholas Swensen 

Kynnir
Trúðurinn Barbara/ Halldóra Geirharðsdóttir 

Einsöngvarar
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Jóhann Kristinsson
Kolbrún Völkudóttir Einsöngvarar

Kórar 
Stúlknakór Reykjavíkur
Kammerkórinn Auror

Gestir
Dansarar Úr Listdansskóla Íslands
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Tónstofu Valgerðar
Skólahljómsveit Kópavogs
Hörpuhópur  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger