© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
19. september
Miðaverð frá
3.100 kr.




Við bjóðum í afmælisveislu eins mesta undrabarns tónlistarsögunnar, Wolfgangs Amedeusar Mozart. Á tónleikunum fögnum við 270 ára fæðingarafmæli tónskáldsins. Halldóra Geirharðsdóttir leikkona leiðir tónleikagesti í ferðalag um ólíka tónleikasali, lönd og menningarheima sem tónskáldið kynntist frá barnsaldri. Mozart var engum líkur, orkumikill og skemmtilegur, og líka dálítill prakkari. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur ásamt söngvurum valin verk sem draga upp lifandi mynd af afmælisbarninu. Í lok tónleikanna tökum við lagið með hljómsveitinni og syngjum Hann Tumi fer á fætur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.
Hljómsveitarstjóri
Richard Schwennicke
Kynnir
Halldóra Geirharðsdóttir
Einsöngvarar
Bryndís Guðjónsdóttir
Unnsteinn Árnason
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Brot úr Eine Kleine Nachtmusik, Sinfóníu Nr. 1, Konsert fyrir flautu og Hörpu, Töfraflautunni, Rondo Alla Turca og fl.

