Barbara syngur Zorn - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

13. febrúar

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Barbara Hannigan og píanóleikarinn Bertrand Chamayou bjóða til einstakra söngtónleika í Norðurljósum. Þessir tónleikar hafa farið sigurför um heiminn á undanförnum misserum og íslenskir tónlistarunnendur fá nú loks tækifæri til að njóta þeirra. Verkin á efnisskránni eiga öll uppruna í samspili náttúru og þeirra goðsagna sem mannkynið hefur mótað til að reyna að skilja heiminn. Þrír ólíkir meistarar eiga tónlistina hér en tveir þeirra, Messiaen og Skrjabín, eru jafnan taldir einhver frumlegustu og áhrifamestu tónskáld 20. aldar. Við bætist tónlist bandaríska tónskáldsins og spunameistarans Johns Zorn sem alltaf nær að skjóta sér undan skilgreiningum og koma á óvart. Tónleikarnir voru valdir meðal bestu tónleika ársins í New York á árinu 2024 af tónlistarblaðamönnum New York Times en í umsögn blaðsins sagði að þar töfruðu þau Hannigan og Chamayou fram epískan heim kvenorku og sköpunarkrafta.

Einsöngvari
Barbara Hannigan 

Einleikari
Bertrand Chamayou 

Efnisskrá
Olivier Messiaen Chants de Terre et de Ciel / Söngvar himins og jarðar
Alexandr Skrjabín Poème Nocturne / Næturljóð
Alexandr Skrjabín  Vers la flamme / Til logans
John Zorn  Jumalatteret / Gyðjur  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger