Heimshorna á milli - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

•

28. nóvember

Miðaverð frá

6.400 kr.

Barbara Hannigan, blokkflautusnillingurinn Lucie Horsch og hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands bjóða tónleikagestum í spennandi óvissuferð þar sem þjóð- og dægur- tónlist frá ólíkum heimshornum er borin fram. Hér heyrum við frábærar útsetningar Luciano Berio á þjóðlögum ýmissa landa í flutningi Barböru Hannigan, kraftmikla austur-evrópska takta sem urðu Bartók að innblæstri og dillandi suðræna blokkflautu-slagara. Þegar við bætist partítónlist eftir Charlie Parker og þjóðlagaarfur Íslands verða þessir tónleikar að sannkallaðri veislu fyrir augu og eyru með listamönnum á heimsmælikvarða.

Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Barbara Hannigan 

Einleikari og einsöngvari
Lucie Horsch 

Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands

Efnisskrá
Georg Philipp Telemann Tvíkonsert fyrir blokkflautu og þverflautu
Béla Bartók Þrjú ungversk þjóðlög frá Csík
Írskt þjóðlag Londonderry Air
Béla Bartók Rúmenskir þjóðdansar
Serbneskt þjóðlag Pašono kolo
Astor Piazzolla Fuga y misterio
Astor Piazzolla Libertango
Luciano Berio Þjóðlög
Íslenskt þjóðlag Móðir mín í kví kví (úts. Barbara Hannigan)
    

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger