Antonini & Avital - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

20. maí

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Mandólín er ekki algengt einleikshljóðfæri á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en nú ber svo við að okkur heimsækir þekktasti mandólínleikari samtímans, Avi Avital. Hann er heillandi tónlistarmaður og göldróttur á hljóðfæri sitt.  Á þessum tónleikum sýnir hann snilli sína í laufléttum konsert frá klassíska tímanum eftir Johann Nepomuk Hummel og einnig í konsert fyrir mandólín og blokkflautu eftir meistara Bach þar sem hljómsveitarstjórinn Giovanni Antonini leikur á blokkflautuna. Antonini er aufúsugestur hingað til lands sem beðið hefur verið eftir enda stjórnar hann öllum fremstu sinfóníuhljómsveitum heims. Antonini stjórnar hér ennfremur tveimur sinfóníum klassíska tímans, annarri eftir Joseph Bologne sem fengið hefur aukna athygli á síðustu árum í heimi sígildrar tónlistar – og loks meistaraverki Mozarts, sinfóníu nr. 41 sem jafnan er kölluð Júpítersinfónían. Hún er síðasta og metnaðarfyllsta sinfónía Mozarts og jafnframt einn af hápunktum klassískrar tónlistarhefðar.

Hljómsveitarstjóri
  Giovanni Antonini 

Einleikari
Avi Avital 

Efnisskrá
Joseph Bologne  Sinfónía nr. 1
Johann Nepomuk Hummel Mandólínkonsert í G-dúr
Johann Sebastian Bach  Konsert fyrir mandólín og blokkflautu í c-moll, BWV 1060R
Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 41, Júpíter  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger