© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
4. febrúar
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Arnheiður Eiríksdóttir, messósópran, hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum og hlaut m.a. Alþjóðlegu óperuverðlaunin sem rísandi stjarna ársins 2024. Hér flytur hún okkur nokkur af fegurstu sönglögum Gustavs Mahler: Söngva förusveinsins, sem fjallar um ástir og sorgir förusveinsins og hið áhrifamikla Urlicht, eða Frumljós úr sinfóníu nr. 2, þar sem lýst er þránni eftir lausn frá veraldlegum þjáningum. Á síðari hluta tónleikanna stjórnar Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hinni gullfallegu sinfóníu nr. 1 eftir Johannes Brahms, en það tók tónskáldið yfir 20 ár að ljúka við hana. Biðin eftir verkinu margborgaði sig þar sem sinfónían er einn af hornsteinum rómantískra tónbókmennta.
Hljómsveitarstjóri
Tomáš Hanus
Einsöngvari
Arnheiður Eiríksdóttir
Efnisskrá
Antonín Dvořák Karnival forleikur
Gustav Mahler Söngvar förusveinsins
Gustav Mahler Urlicht úr sinfóníu nr. 2
Johannes Brahms Sinfónía nr. 1

