© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
7. - 9. janúar
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar. Þeir eru sannkölluð nýársveisla og sú létta og skemmtilega tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt ár. Á efnisskránni er að vanda sígild Vínartónlist sem kemur öllum í gott skap; valsar, polkar, og fjörug galopp. Þá hljóma aríur og dúettar úr vinsælum óperettum í flutningi tveggja framúrskarandi einsöngvara. Sópransöngkonan Harpa Ósk Björnsdóttir er Íslendingum að góðu kunn, en hún er nú fastráðin við óperuna í Basel í Sviss. Eggert Reginn Kjartansson, tenórsöngvari hefur að undanförnu vakið athygli í uppfærslum Kammeróperunnar, nú síðast sem Don Jose í Carmen. Auk þeirra koma fram samkvæmisdansarar sem stíga létt og glæsileg spor í Eldborg við dynjandi Vínartónlistina. Vínartónleikarnir eru ævinlega fullkominn upptaktur að nýju ári og færa áheyrendum birtu og yl í svartasta skammdeginu.
Hljómsveitarstjóri
Christoph Koncz
Einsöngvarar
Harpa Ósk Björnsdóttir
Eggert Reginn Kjartansson

