Hannigan & Horsch - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

26. nóvember

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Blokkflautuleikarinn Lucie Horsch hefur skotist upp á stjörnuhimininn þrátt fyrir ungan aldur og er nú talin fremsti blokkflautuleikari sinnar kynslóðar. Hið virta tónlistartímarit breska ríkisútvarpsins, BBC sagði um leik Horsch að þar væri á ferðinni „Ógnvekjandi snilldargáfa og frábær tækni.“ Á þessum tónleikum kynnumst við möguleikum blokkflautunnar í tveimur mismunandi verkum; í umritun Frans Brüggen á fiðlukonsert Bachs fyrir blokkflautu og hljómsveit, en einnig í ævintýralegu verki eftir eistneska tónskáldið Erkki-Sven Tüür, Whistles and Whispers from Uluru, þar sem fuglasöngur Eystrasaltsins blandast dulmagni hins rauðleita sandsteinsfjalls, Uluru, í Ástralíu. Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir einnig hljómsveitina í tveimur tónverkum nýklassíska tímans: Hinum glitrandi konsert, Dumbarton Oaks, eftir Ígor Stravinskíj og hinni bráðskemmtilegu klassísku sinfóníu eftir Sergej Prokofíev.

Hljómsveitarstjóri
  Barbara Hannigan 

Einleikari
Lucie Horsch 

Efnisskrá
Johann Sebastian Bach Ricercar A 6
Johann Sebastian Bach Konsert fyrir blokkflautu, BWV 1053  
Ígor Stravinskíj  Dumbarton Oaks
Erkki-Sven Tüür  Whistles and Whispers From Uluru
Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 1 „Klassíska sinfónían“  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger