© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
1. október
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 21 klukkustund)




Kanadíski sellóleikarinn, Bryan Cheng, sem skotist hefur hratt upp á stjörnuhimininn, leikur hinn innilega og ljóðræna sellókonsert Roberts Schumann. Þrátt fyrir blendnar móttökur í upphafi hefur konsertinn fengið sess sem einn þekktasti sellókonsert róman-tíska tímabilsins. Tónlist hinnar frönsku Charlotte Sohy er farin að vekja aukna athygli á síðustu árum. Sinfónían í cís-moll er áhrifamikil lýsing konu á stríðsátökum þar sem lítið fer fyrir hetjudáðum en meira fyrir ótta og óvissu. Á tónleikunum hljómar einnig stuttur, sólbjartur forleikur eftir Lili Boulanger sem fangar vorstemninguna í París þegar náttúran vaknar úr vetrardvala. Að lokum er leikinn hinn kraftmikli þriðji Leonóru-forleikur Beethovens sem lifir góðu lífi sem sjálfstætt hljómsveitarverk. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er hin unga Bar Avni. Hún var sigurvegari La Maestra hljómsveitarstjórakeppninnar árið 2024 og hefur ferill hennar verið á hraðri uppleið á síðustu misserum.
Hljómsveitarstjóri
Bar Avni
Einleikari
Bryan Cheng
Efnisskrá
Lili Boulanger D'un Matin De Printemps / Á Vormorgni
Robert Schumann Sellókonsert
Charlotte Sohy Sinfónía Í Cís-Moll
Ludwig Van Beethoven Leónóra, Forleikur Nr. 3

