Landsmót íslenska kvennakóra

Hljómahöll

12. - 13. júní

Miðaverð frá

3.000 kr.

Landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið 11.-13. júní næstkomandi í Reykjanesbæ. 

Kvennakór Suðurnesja er gestgjafi mótsins að þessu sinni en þetta er 12. landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra. Mótin hafa verið haldin víðsvegar um landið á 3ja ára fresti og er þetta í annað skiptið sem Suðurnesjakonur standa fyrir mótinu.

Um 330 kvennakórskonur frá öllum landshlutum munu koma saman í söng, gleði og tónleikahaldi.

Kórarnir sem eru 12 talsins munu flytja eigið prógramm á tónleikum 12. júní í Hljómahöll. Eftirfarandi kórar munu koma fram:

  • Kvennakórinn Senjórítur

  • Kvennakór Ísafjarðar

  • Kvennakór Hornafjarðar

  • Kvennakórinn Ymur

  • Léttsveit Reykjavíkur

  • Kvennakór Akureyrar

  • Kvennakórinn Hrynjandi

  • Kvennakór Reykjavíkur

  • Kvennakór Hafnarfjarðar

  • Kvennakórinn Ljósbrá

  • Kvennakór Suðurnesja

Seinni tónleikarnir eru 13. júní í Stapaskóla og bera yfirskriftina „Eldgyðjur“ sem er þema tónleikanna og var valið í tengslum við eldsumbrotin sem hafa verið á Reykjanesi síðustu ár.

Á þessum tónleikum munu kórarnir sameinast og flytja afrakstur sameiginlegra æfinga.

Þá mun hópurinn skiptast í 5 smiðjur sem hafa æft saman prógramm frá 5 smiðjustjórum. Stjórnendur þessara hópa eru Ágota Joó, Arnór B. Vilbergsson, Dagný Þ. Jónsdóttir, Gísli Magna og Rafn Hlíðkvist.

Lagavalið er mjög fjölbreytt, þekkt íslensk lög, kvikmyndatónlist og gospel.

Hápunktur tónleikanna er síðan þegar allur hópurinn sameinast í frumflutningi mótslagsins. Hefð er fyrir því að sérstakt mótslag er samið fyrir hvert landsmót og tengist það því svæði sem mótið er haldið á. Að þessu sinni er lagahöfundurinn hinn landsþekkti og dáði Suðurnesjamaður Magnús Þór Sigmundsson. Lagið er samið við texta Rutar Gunnarsdóttur sem er fyrrum kórkona Kvennakórs Suðurnesja en hún lést árið 2006 og tengist textinn þema tónleikanna.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger