HINN EILÍFI SÖNGUR - SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Hafnarborg

27. júní

Miðaverð frá

0 kr.

HINN EILÍFI SÖNGUR - SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar blómstrar á tónleikunum Hinn eilífi söngur á Sönghátíð í Hafnarborg. Titill tónleikanna vísar í hið fagra tregaljóð Chanson perpétuelle eftir Ernest Chausson fyrir söngkonu, strengjakvartett og píanó. Verkið kallast á við þrjú sönglög eftir spænsk/frönsku söngkonuna og tónskáldið Pauline Viardot, sem spænski gítarleikarinn og einn af stjórnendum Sönghátíðar í Hafnarborg, Francisco Javier Jáuregui, hefur útsett fyrir rödd, píanó og strengi. Pauline Viardot var virtúósasöngkona á 19. öld en á sömu öld var helsti fiðluvirtúósinn Niccolò Paganini, sem samdi hið fagra Cantabile fyrir fiðlu og gítar sem hér mun hljóma.

Einn frægasti sellóleikari sögunnar var án vafa Pablo (Pau) Casals. Hans eftirlætis aukalag var katalónska þjóðlagið Söngur fuglanna (El cant dels ocells) sem hér er flutt í gullfallegri útsetningu Spánverjans Xavier Montsalvatge fyrir söngkonu, selló og píanó. Á tónleikunum má einnig heyra hið fræga verk Zwei Gesänge (Tveir söngvar) eftir Johannes Brahms fyrir mezzósópran, víólu og píanó, m.a. við ljóð eftir spænska gullaldarljóðskáldið Lope de Vega, sem samdi líka ljóðið við lagið Pastorcito Santo eftir Joaquín Rodrigo, sem hljómar fyrir söngrödd og klassískan gítar.

Sönghátíð í Hafnarborg styrkir klassísku söngkeppnina Vox Domini með því að gefa sigurvegaranum, Rödd ársins, tækifæri til að koma fram á hátíðinni. Í ár er það sópransöngkonan Halldóra Ósk Helgadóttir sem er handhafi verðlaunanna og gleður eyru áheyrenda með því að syngja ljóðaflokkinn Mädchenblumen eftir Richard Strauss með Þóru Kristínu Gunnarsdóttur píanóleikara.

Verið velkomin á þessa fjölbreyttu kammertónleika á Sönghátíð í Hafnarborg. Flytjendur eru Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Halldóra Ósk Helgadóttir sópran, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó, Sólveig Steinþórsdóttir fiðla, Bjargey Birgisdóttir fiðla, Fidel Atli Quintero Gasparsson víóla, Júlía Mogensen selló og Francisco Javier Jáuregui gítar.

Tónleikarnir eru styrktir af Spænska sendiráðinu á Íslandi og AECID (Agencia Española de Cooperación Internacional para el Desarrollo). Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.


SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG FAGNAR 10 ÁRA AFMÆLI
13.6-28.6.2026

TÓNLEIKAR:

Í KVÖLDROÐA
Lau. 13.6. kl. 17:00
Sally Matthews sópran og Simon Lepper píanóleikari. Ljóðatónleikar.

SUOR ANGELICA
Lau. 20.6. kl. 17:00
Sönghópurinn Gjallandi og píanóleikarinn Ólína Ákadóttir flytja óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini.

VEGURINN ENDALAUSI
Sun. 21.6. kl. 17:00
Stuart Skelton tenór og Liam Kaplan píanóleikari. Ljóðatónleikar.

FRAGMENTS
Þri. 23.6. kl. 20:00
Olga Vocal Ensemble. Fragments útgáfutónleikar.

MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 25.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari flytja sönglög og óperuaríur.

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 26.6. kl. 17:00
Solveig Óskarsdóttir söngkona og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari. Börn úr skapandi tónlistarsmiðju undir stjórn Sævars koma einnig fram.

HINN EILÍFI SÖNGUR
Lau. 27.6. kl. 17:00
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Halldóra Ósk Helgadóttir sópran, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó, Sólveig Steinþórsdóttir fiðla, Bjargey Birgisdóttir fiðla, Fidel Atli Quintero Gasparsson víóla, Júlía Mogensen selló og Francisco Javier Jáuregui gítar. Ljóðatónleikar.

ÓPERUGALA
Sun. 28.6. kl. 17:00
Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum.

Sönghátíð í Hafnarborg 2026

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fagnar tíu ára afmæli dagana 13. – 28. júní 2026.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Ljóðasöngur, óperutónlist og samsöngur verða í hávegum höfð.

Á Sönghátíð í Hafnarborg gefst einstakt tækifæri til að sjá framúrskarandi söngvara í návígi, þar á meðal Metropolitan hetjutenórinn Stuart Skelton með Liam Kaplan við slaghörpuna og sópranstjörnuna Sally Matthews ásamt meðleikaranum fræga Simon Lepper.

Yngri kynslóðin lætur skýrt í sér í heyra í flutningi Gjallanda á óperunni Suor Angelica eftir Puccini.

Hin vinsæli raddkvartett Olga Vocal Ensemble flytur lög af nýjustu plötunni sinni, Fragments.

Ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar blómstrar á tónleikunum Hinn eilífi söngur, þar sem söngkonurnar Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Halldóra Ósk Helgadóttir koma fram. Halldóra Ósk tekur þátt sem handhafi verðlaunanna Rödd ársins í söngkeppninni Vox Domini.

Óperusöngvararnir Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr ástsælum óperum á hinu vinsæla árlega Óperugala.

Á master class tónleikum flytja söngvarar, söngnemendur og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari uppskeru fjögurra daga námskeiðs sem einn af reynslumestu óperusöngvurum Íslands, Kristinn Sigmundsson, kennir á.

Einnig er boðið upp á fjölskyldutónleika þar sem Solveig Óskarsdóttir og Sævar Helgi Jóhannsson flytja skemmtilega dagskrá með aðstoð barna úr vikulangri skapandi tónlistarsmiðju hátíðarinnar, en Sævar hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því tíunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, skapandi tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Tónlistarsjóður, Hafnarfjörður, Spænska sendiráðið, AECID, Félag íslenskra hljómlistarmanna og Barnamenningarjóður Íslands styðja hátíðina. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.is Miðasalan fer fram á Tix.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger