VEGURINN ENDALAUSI – STUART SKELTON Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Hafnarborg

21. júní

Miðaverð frá

0 kr.

VEGURINN ENDALAUSI – STUART SKELTON Á SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG

Ein skærasta stjarna óperuheimsins í dag, ástralski hetjutenórinn Stuart Skelton, kemur fram á einstökum tónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg, en fyrr á þessu ári söng hann m.a. í Tristan og Isolde við Metropolitan óperuhúsið í New York. Það er mikill fengur fyrir alla unnendur sönglistar að sjá og heyra þennan alþjóðlega stórsöngvara í eins miklu návígi og Hafnarborg býður upp á. Á tónleikunum Vegurinn endalausi (The Unending Path) flytja Stuart Skelton og píanóleikarinn Liam Kaplan, sem er fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands, sönglagaflokkana frægu Songs of Travel eftir Ralph Vaughan Williams, Lieder eines fahrenden Gesellen eftir Gustav Mahler, Unvergänglichkeit eftir Erich Wolfgang Korngold og ástkær sönglög eftir Henri Duparc.


Missið ekki af þessu fágæta tækifæri til að hlusta á söngtónleika á heimsmælikvarða, í menningarmiðstöð Hafnarfjarðar.

Athugið að hægt er að kaupa hátíðarpassa á aðeins 15.900 kr. sem gildir á alla tónleika á Sönghátíð í Hafnarborg 13.6.-28.6.2026. Takmarkað upplag er í boði.

STUART SKELTON, tenór, hefur sungið í helstu óperuhúsum heims, Metropolitan-óperunni í New York, La Scala, óperuhúsunum í Seattle og San Francisco, Royal Opera House Covent Garden, Ensku þjóðaróperunni (ENO), Parísaróperunni, Teatro Real, Ríkisóperunni í Berlín, Deutsche Oper í Berlín, Bavarian og Hamburg State Opera, Dresden Samperoper og Vínaróperunni. Meðal helstu hlutverka hans eru Lohengrin, Parsifal og Peter Grimes auk Florestan í Fidelio, Erik í Hollendingnum fljúgandi, Bakkus í Ariadne á Naxos og Siegmund í Niflungahringnum.

Skelton hefur einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveitunum í Atlanta, Boston, Chicago, Cleveland, San Francisco og Montreal með Fílharmóníusveitinni í Los Angeles, Sinfóníuhljómsveit Lundúnaborgar og Sinfóníuhljómsveitunum í Sydney og Melbourne. Hann hefur komið fram á tónlistarhátíðunum í Salzburg, Edinborg, Baden-Baden, Aix-en-Provence, Luzern og á BBC Proms og unnið með hljómsveitarstjórum á borð við Vladimir Ashkenazy, Daniel Barenboim, Christoph von Dohnányi, Christoph Eschenbach, Mariss Jansons, James Levine, Lorin Maazel og Sir Simon Rattle. http://www.stuartskelton.com/


Píanóleikarinn og tónskáldið LIAM KAPLAN hefur verið píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan árið 2024. Liam hefur komið fram á ýmsum tónleikaröðum á Íslandi, þar á meðal Tíbrá í Salnum í Kópavogi, með Kammermúsikklúbbnum og 15:15. Hann hefur komið fram sem einleikari með Oberlin Sinfonietta, Oberlin Orchestra, og Aspen Conducting Academy Orchestra. Liam var meðlimur Aspen Contemporary Ensemble árin 2022–23 og hefur hann frumflutt mörg ný verk með þeim. Herdís Mjöll Guðmundsdóttir frumflutti fiðlukonsert Liams með Tim Weiss og Oberlin Contemporary Ensemble árið 2020. Hann hefur gefið út tvær einleiksplötur sem innihalda seinni hluta Das Wohltemperierte Klavier og Goldberg tilbrigðin eftir J.S. Bach. Seinni plata Liams inniheldur einnig 8 Prelúdíur eftir hann sjálfan og Orpheus Suite eftir Elizabeth Ogonek. Liam lauk bakkalárgráðu við Oberlin Conservatory þar sem hann lærði píanóleik hjá Alvin Chow og tónsmíði hjá Stephen Hartke. Ásamt því að vera píanóleikari, vinnur Liam sem útsetjari og nótnasmiður fyrir fyrirtæki eins og Boosey & Hawkes og fyrir tónskáldin John Adams og Clarice Assad. https://www.liamkaplanmusic.com/

SÖNGHÁTÍÐ Í HAFNARBORG FAGNAR 10 ÁRA AFMÆLI
13.6-28.6.2026

TÓNLEIKAR:

Í KVÖLDROÐA
Lau. 13.6. kl. 17:00
Sally Matthews sópran og Simon Lepper píanóleikari. Ljóðatónleikar.

SUOR ANGELICA
Lau. 20.6. kl. 17:00
Sönghópurinn Gjallandi og píanóleikarinn Ólína Ákadóttir flytja óperuna Suor Angelica eftir Giacomo Puccini.

VEGURINN ENDALAUSI
Sun. 21.6. kl. 17:00
Stuart Skelton tenór og Liam Kaplan píanóleikari. Ljóðatónleikar.

FRAGMENTS
Þri. 23.6. kl. 20:00
Olga Vocal Ensemble. Fragments útgáfutónleikar.

MASTER CLASS TÓNLEIKAR
Fim. 25.6. kl. 20:00
Nemendur Kristins Sigmundssonar á master class námskeiði og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari flytja sönglög og óperuaríur.

FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR
Fös. 26.6. kl. 17:00
Solveig Óskarsdóttir söngkona og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari. Börn úr skapandi tónlistarsmiðju undir stjórn Sævars koma einnig fram.

HINN EILÍFI SÖNGUR
Lau. 27.6. kl. 17:00
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Halldóra Ósk Helgadóttir sópran, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó, Sólveig Steinþórsdóttir fiðla, Bjargey Birgisdóttir fiðla, Fidel Atli Quintero Gasparsson víóla, Júlía Mogensen selló og Francisco Javier Jáuregui gítar. Ljóðatónleikar.

ÓPERUGALA
Sun. 28.6. kl. 17:00
Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr óperum.

Sönghátíð í Hafnarborg 2026

Hin árlega Sönghátíð í Hafnarborg fagnar tíu ára afmæli dagana 13. – 28. júní 2026.

Hátíðin býður upp á átta opinbera tónleika í aðalsal Hafnarborgar með vönduðum tónlistarmönnum af ólíkum kynslóðum. Ljóðasöngur, óperutónlist og samsöngur verða í hávegum höfð.

Á Sönghátíð í Hafnarborg gefst einstakt tækifæri til að sjá framúrskarandi söngvara í návígi, þar á meðal Metropolitan hetjutenórinn Stuart Skelton með Liam Kaplan við slaghörpuna og sópranstjörnuna Sally Matthews ásamt meðleikaranum fræga Simon Lepper.

Yngri kynslóðin lætur skýrt í sér í heyra í flutningi Gjallanda á óperunni Suor Angelica eftir Puccini.

Hin vinsæli raddkvartett Olga Vocal Ensemble flytur lög af nýjustu plötunni sinni, Fragments.

Ljóðasöngur með strengjakvartett, píanói og gítar blómstrar á tónleikunum Hinn eilífi söngur, þar sem söngkonurnar Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Halldóra Ósk Helgadóttir koma fram. Halldóra Ósk tekur þátt sem handhafi verðlaunanna Rödd ársins í söngkeppninni Vox Domini.

Óperusöngvararnir Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór, Andri Björn Róbertsson bass-baritón og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari flytja aríur og samsöngsatriði úr ástsælum óperum á hinu vinsæla árlega Óperugala.

Á master class tónleikum flytja söngvarar, söngnemendur og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari uppskeru fjögurra daga námskeiðs sem einn af reynslumestu óperusöngvurum Íslands, Kristinn Sigmundsson, kennir á.

Einnig er boðið upp á fjölskyldutónleika þar sem Solveig Óskarsdóttir og Sævar Helgi Jóhannsson flytja skemmtilega dagskrá með aðstoð barna úr vikulangri skapandi tónlistarsmiðju hátíðarinnar, en Sævar hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins.

Sönghátíð í Hafnarborg hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins 2020. Hún var stofnuð árið 2017 og fer því tíunda árlega hátíðin fram í ár. Auk tónleika býður hún upp á master class námskeið Kristins Sigmundssonar fyrir söngnemendur og söngvara, skapandi tónlistar- og myndlistarnámskeið fyrir 6-12 ára, tónlistarsmiðju fyrir 3-5 ára með foreldrum og krílasöng fyrir 6-18 mánaða með foreldrum.

Markmið hátíðarinnar er að koma list raddarinnar á framfæri með tónleikum og námskeiðum. Jafnframt er horft til framtíðar með því að birta á YouTube síðu hátíðarinnar viðtöl við söngvara og valdar myndbandsupptökur af tónleikum.

Sönghátíð í Hafnarborg er sjálfstæð hátíð, sem haldin er í gjöfulu samstarfi við Hafnarborg. Tónlistarsjóður, Hafnarfjörður, Spænska sendiráðið, AECID, Félag íslenskra hljómlistarmanna og Barnamenningarjóður Íslands styðja hátíðina. Við þökkum þeim kærlega fyrir stuðninginn.

Góða skemmtun!

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui,
stofnendur og stjórnendur Sönghátíðar í Hafnarborg.

Dagskrá hátíðarinnar má skoða á vefsíðunni www.songhatid.is Miðasalan fer fram á Tix.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger