Jónas Sig | Af fingrum fram

Salurinn

5. nóvember

Miðaverð frá

7.900 kr.

Tónlistarmaðurinn og „Sólstrandagæinn“ Jónas Sig verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 5. nóvember, 2026. 

Þorlákshafnar Jónas sló í gegn með Sólstrandargæjunum og þjóðin söng með af lífi og sál.  Í kjölfarið fór hann til Danmerkur að vinna fyrir Microsoft og beið hans björt framtíð við tölvuforritun.  

Tónlistin togaði þó í hann og flutti hann aftur til Íslands og lét skeika að sköpuðu undir eigin nafni ásamt Ritvélum framtíðarinnar. Íslendingar voru meira en tilbúnir að taka Sólstrandagæjann aftur upp á arma sína og Jónas hefur vart litið um öxl síðan!  

// 

  Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem   einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.   

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.

 

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:

 

/ 2026 /

  • 17.      september 2026: Halli og Gói

  • 1.      október 2026: Una Torfa

  • 15.      október 2026: Jón Jónsson

  • 5.      nóvember 2026: Jónas Sig

  • 26.      nóvember 2026: Ragga Gísla

/ 2027 /

  • 21.      janúar 2027: Mugison

  • 11.      febrúar 2027: Bríet

  • 11.      mars 2027: Daníel Ágúst

  • 8.      apríl 2027: Ólöf Arnalds

  • 6.      maí 2027: Sóli Hólm

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger