© 2026 Tix Miðasala

Salurinn
•
15. október
Miðaverð frá
7.900 kr.




Tónlistarmaðurinn síglaði - og vinsæli Jón Jónsson verður gestur nafna síns Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 15. október, 2026
Það er óhætt að segja að Jóni Ragnari Jónssyni sé ýmislegt til lista lagt. Í Versló var ekki þverfótað fyrr kappanum sem brilleraði í söngleikjauppfærslum skólans. Hann lék knattspyrnu með gullaldarliði FH í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari með liðinu. Hans besta ár var þó auðvitað þegar hann lék sem lánsmaður með Þrótti Reykjavík.
Jón stundaði hagfræðinám í Bandaríkjunum og fór að koma fram með eigið efni sem tryggði honum erlendan plötusamning. Frægðarsól hans hefur engu að síður skinið skærast á Íslandi. Jón lofar fjöri enda ,,Iceguy“!
//
Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.
Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.
Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:
/ 2026 /
17. september 2026: Halli og Gói
1. október 2026: Una Torfa
15. október 2026: Jón Jónsson
5. nóvember 2026: Jónas Sig
26. nóvember 2026: Ragga Gísla
/ 2027 /
21. janúar 2027: Mugison
11. febrúar 2027: Bríet
11. mars 2027: Daníel Ágúst
8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
6. maí 2027: Sóli Hólm

