Tan Dun & Stravinskíj - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

10. júní

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Tan Dun er eitt af þekktustu tónskáldum samtímans og er hvað þekktastur fyrir að hafa náð að tengja saman kínverska og vestræna tónlistarhefð á listilegan máta. Hann er þekktur fyrir sinfónísk verk sín jafnt sem kvikmyndatónlist og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þ. á m., Grammy-,  BAFTA- og Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Crouching Tiger, Hidden Dragon. Hann er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar, enda er vatn og önnur frumefni afar algengt yrkisefni í verkum hans. Leiðari pákudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Soraya Nayyar, mun leika hinn einstaka vatns-konsert eftir Tan Dun, þar sem vatnið er oft og tíðum aðal einleikshljóðfærið. Á tónleikunum verða einnig flutt tvö verk eftir Stravinskíj í fyrsta sinn á Íslandi: Æskuverkið Flugeldar, sem vakti verðskuldaða athygli á tónskáldinu unga unga þegar verkið var frumflutt og tónaljóðið Söngur næturgalans, sem Stravinskíj vann upp úr óperu sinni Næturgalanum frá 1914. Andi Vorblótsins svífur yfir vötnunum í þessu litskrúðuga og fjörmikla tónaljóði sem segir söguna af því hvernig söngur næturgalans bræddi hjarta keisarans í Kína.

Hljómsveitarstjóri
Tan Dun 

Einleikari
Soraya Nayyar 

Efnisskrá
Ígor Stravinskíj  Feu D’artifice / Flugeldar
Tan Dun Water Concerto, Konsert fyrir vatnsslagverk og hljómsveit
Ígor Stravinskíj Le Chant du Rossignol / Söngur næturgalans
Tan Dun  Passacaglia: Secrets of Winds and Birds  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger