Leonskaja leikur Mozart - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

29. apríl

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Elisabeth Leonskaja hefur átt glæstan feril sem píanóleikari í um 60 ár -og þessi hógværa drottning hljóðfærisins heillar enn áheyrendur með litskrúðugum leik sínum og innblásinni túlkun. Á  þessum tónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur hún hinn gullfallega píanókonsert nr. 24 í c-moll eftir W.A. Mozart, sem er einn af hans þekktustu og mest leiknu píanókonsertum. Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir hljómsveitina einnig í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Tónverkið hefur aldrei áður verið flutt hér í heild sinni en það er samsett úr sex sjálfstæðum tónaljóðum sem öll tengjast náttúru og sögu Bæheims. Annað tónaljóðið, Moldá, er langþekktasti hluti verksins og hefur margoft verið leikið af Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Hljómsveitarstjóri
  Tomáš Hanus 

Einleikari
Elisabeth Leonskaja -

Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Píanókonsert nr. 24
Bedřich Smetana Má vlast / Föðurland mitt  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger