Draumur á Jónsmessunótt - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

3. júní

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Í lok tónleikaársins býður Barbara Hannigan, aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar upp á heillandi og sumarlega efnisskrá. Tónleikarnir  hef jast með fjórum þáttum úr tónlist Mendelssohns við leikritið Draum á Jónsmessunótt, þar á meðal eru hinn fjörlegi forleikur og brúðkaupsmarsinn alþekkti. Dansinn er áberandi í bandarískri tónlist, sem finna má á efnisskránni. Hringekjan snýst og snýst í dillandi valsi úr söngleik Richard Rodgers og Dansasinfónía Aarons Copland hljómar nú í fyrsta sinn á Íslandi, verk sem tónskáldið endurvann upp úr balletti sem aldrei varð. Í lok tónleikanna syngur Barbara Hannigan í nýrri tónsmíð, Á hátíðinni, sem hún hefur skapað ásamt bandaríska kvikmynda- og leikhústónskáldinu Bill Elliot. Tónleikarnir verða endurteknir í styttri útgáfu, án Dansasinfóníunnar, í Hofi á Akureyri.

Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Barbara Hannigan 

Efnisskrá
Felix Mendelssohn  Þættir úr Draumi  á Jónsmessunótt
Aaron Copland Dance Symphony
Richard Rodgers  Carousel Waltz
Bill Elliott  At the Fair  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger