© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
15. apríl
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Sinfóníur Antons Bruckner hafa hrifið áheyrendur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gegnum tíðina. Fimmta sinfónía Antons Bruckner er þar engin undantekning, en þessi tilkomumikla sinfónía skipar nokkuð sérstakan sess í höfundarverki Bruckners. Hún er frekar innhverft verk, hefst á hægum inngangi en þegar á líður rís hún upp í stórkostlegt samspil tóna og lita og nær hápunkti í glæsilegum lokaþættinum.
Tónlist íslensk-þýska tónskáldsins Steingríms Rohloff hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum og verk hans verið flutt víða um heim. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að einleikskonsertum fyrir einleikara í fremstu röð. Á þessum tónleikum fáum við að heyra Íslandsfrumflutning á konsert fyrir horn og hljómsveit sem saminn var að undirlagi Stefans Dohr, leiðara horndeildar Fílharmóníuhljómsveitar Berlínar. Konsertinn var frumfluttur í maí á síðasta ári í Álaborg og hlaut frábærar móttökur áheyrenda og gagnrýnendur töluðu um „meistaraverk sem á eftir heyrast aftur og aftur“. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 2020 til 2026.
Hljómsveitarstjóri
Eva Ollikainen
Einleikari
Stefan Dohr
Efnisskrá
Steingrímur Rohloff Hornkonsert
Anton Bruckner Sinfónía nr. 5

