Ásta Dóra leikur Grieg - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóní­uhljóm­sveit Íslands

11. mars

Sala hefst

8. júní 2026, 10:00

(eftir 3 daga)

Ásta Dóra Finnsdóttir er ein af okkar efnilegustu píanóleikurum og stundar nú framhaldsnám við einn virtasta tónlistarskóla heims, Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásta Dóra kemur fram sem einleikari á áskriftartónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún leikur hér hinn síunga píanókonsert Griegs sem geislar af lífi og krafti. Konsertinn sló í gegn strax við frumflutning og hefur síðan verið eitt vinsælasta tónverk Griegs.
Á síðari hluta tónleikanna verður Íslandsfrumflutningur á nýju stórvirki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en jafnan er beðið eftir nýjum verkum frá Önnu með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki. Hin norska Tabita Berglund, stjórnandi tónleikanna, er á hraðri uppleið í heimi hljómsveitarstjóra og tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bergen haustið 2026.

Hljómsveitarstjóri
Tabita Berglund 

Einleikari
Ásta Dóra Finnsdóttir 

Efnisskrá
Carl Nielsen Helíos forleikur
Edvard Grieg  Píanókonsert í a-moll
Anna Þorvaldsdóttir  Shadows  of Solace  frumflutningur á Íslandi  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger