© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
29. október
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Tvö tónverk sem takast á við hinstu rök tilverunnar eru viðfangsefni þessara hádrama-tísku tónleika. Eyja hinna dauðu er áhrifamikið tónaljóð eftir Rakhmanínov sem er innblásið af samnefndu málverki eftir Arnold Böcklin og Sinfónía nr. 13, „Babí Jar“, eftir Shostakovitsj er stórfenglegt verk fyrir bassasöngvara, karlakór og hljómsveit við ljóð eftir Jevgení Jevtúsjenko. Verkið er vitnisburður um siðferðisþrek og mannlega samkennd þar sem beisk kaldhæðni og djúp sorg takast á. Saman skapa þessi tvö meistaraverk sterka upplifun sem lætur engan ósnortinn. Bassasöngvarinn Alexander Roslavets er rísandi stjarna í óperuheiminum og hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur. Hljómsveitarstjórinn Andris Poga stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta ári við góðar undirtektir.
Hljómsveitarstjóri
Andris Poga
Einsöngvari
Alexander Roslavets
Kórar
Karlakórinn Fóstbræður
Sönghópurinn Kyrja
Efnisskrá
Sergej Rakhmanínov Eyja Hinna Dauðu
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía Nr. 13 „Babí Jar“

