© 2026 Tix Miðasala

Sinfóníuhljómsveit Íslands
•
15. október
Sala hefst
8. júní 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




Hér kemur tónlistin til okkar úr djúpinu en tvö heillandi tónverk eftir Jean Sibelius ramma inn tónleikana. Í upphafi rísa úr hafi Ránardætur í samnefndu tónaljóði finnska tónskáldsins. Þar dregur Sibelius upp listilega mynd af leik gyðjanna og hafinu, þessu mikla afli sem eina stundina virðist alsaklaust en rýkur upp þá næstu með ógnarafli. Undir lok tónleikanna hljómar hin stórkostlega sjöunda sinfónía tónskáldsins sem er, eins og tónaljóðið, aðeins í einum kafla. Sinfónían þykir bera frumleika tónskáldsins fagurt vitni og er af mörgum talin eitt af stórkostlegustu tónverkum Sibeliusar. Sænska ungstirnið Johan Dalene leikur einleik í áhrifamiklum fiðlukonserti eftir Thomas Adès. Stjarna hans hefur risið hratt frá því að hann lék síðast einleik með hljómsveitinni. Konsert Adès, eins þekktasta tónskálds samtímans, er í senn margbrotinn og hárnákvæmur, ljóðrænn og tilfinningaþrunginn. Annað breskt tónskáld, Benjamin Britten, á einnig verk á tónleikunum; millispil úr óperunni Peter Grimes þar sem hafið mótar líf persónanna, líkt og það gerir hjá okkur á eyjunni í norðri.
Hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason
Einleikari
Johan Dalene
Efnisskrá
Jean Sibelius Ránardætur
Thomas Adès Fiðlukonsert, Concentric Paths
Benjamin Britten Passacaglia úr óperunni Peter Grimes
Jean Sibelius Sinfónía nr. 7

