© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
8. mars
Sala hefst
29. maí 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




MORGAN JAY er tónlistarmaður og uppistandari búsettur í Los Angeles. Hann hefur vakið verðskuldaða athygli í MTV-þáttunum Wild’n’Out sem og á NBC og Comedy Central, auk þess sem hann var valinn „New Face“ á grínhátíðinni Just For Laughs árið 2023. Morgan á ítalskar og brasilískar rætur og sækir tónlistarinnblástur sinn í þann bakgrunn ásamt uppvextinum á tíunda áratugnum. Hann hóf feril sinn í New York þar sem hann stundaði nám við hinn virta Tisch School of the Arts, samhliða því að stíga sín fyrstu skref í uppistandi á börum og neðanjarðarklúbbum borgarinnar.
Leiklistarferill Morgans fer ört vaxandi. Hann lauk nýverið tökum á kvikmynd Joey Power, LOVE LANGUAGE, þar sem hann fer með hlutverk á móti Chloë Grace Moretz og Anthony Ramos. Þá fer hann með hlutverk í þáttunum STICK á Apple TV+ á móti Owen Wilson og Marc Maron, og í ST. DENIS MEDICAL á NBC. Morgan fer einnig með aðalhlutverkið í spennu-gamanmyndinni COTTON CANDY BUBBLE GUM eftir J. Pinder, sem frumsýnd var í Narrative Spotlight-flokknum á SXSW-hátíðinni árið 2025.

