Segðu þína sögu - sögustund

Tjarnarbíó

2. júní

Miðaverð frá

3.200 kr.

Deila sögum úr eigin lífi á einstöku sagnakvöldi

  • Afrakstur spennandi námskeiðs sem staðið hefur undanfarinn mánuð

  • Sannar sögur úr eigin lífi fluttar á sviði fyrir áhorfendur í forsal Tjarnarbíós

  • Einn viðburður, margar sögur, ógleymanleg kvöldstund.

Þriðjudaginn 2. júní verður boðið upp á spennandi viðburð þar sem töfrar frásagnarlistarinnar fá að svífa um sal Tjarnarbíós: Segðu þína sögu. Það eru þau Steinar Júlíusson og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir sem hafa veg og vanda af þessum viðburði í samstarfi við Tjarnarbíó. Þar stígur fólk á svið og segir sögu úr eigin lífi– sögur sem eru einlægar, fyndnar, óvæntar og hreyfa við hjartanu. Þau sem koma fram þetta kvöld hafa sótt námskeiðið Segðu þína sögu hjá Steinari og Unni. Þessi viðburður er því lokahnykkurinn á vegferð þessara nemenda.


Steinar og Unnur sem hafa bæði miklu reynslu úr heimi sviðslista og kennslu. Steinar hefur verið virkur í spunasenunni undanfarin ár stigið á stokk með Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum og sinnt kennslu í Listaháskólanum og Iðunni fræðslusetri í grafíski hönnun. Unnur Elísabet er danshöfundur og leikstjóri sem nýlega vakti mikla athygli fyrir sýningu sína, Skíthrædd í Þjóðleikhúskjallaranum og leikstýrði einnig Jólapartý Skoppu og Skrýtlu í Borgarleikhúsinu um jólin.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger