© 2026 Tix Miðasala
Hallgrímskirkja
•
18. júlí
Miðaverð frá
3.200 kr.




Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Magnús Ragnarsson
Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2026
Laugardagur 18. júlí kl. 12
Magnús Ragnarsson orgel, Langholtskirkja Reykjavík
Aðgangseyrir 3.200 kr.
Magnús Ragnarsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Tónlistarháskólann í Gautaborg. Þá stundaði hann framhaldsnám í kórstjórn við Háskólann í Uppsölum. Magnús starfar sem organisti í Langholtskirkju og stjórnar Kór Langholtskirkju. Hann hefur stjórnað Söngsveitinni Fílharmóníu frá 2006, Hljómeyki árin 2006–2012 og Melodiu – Kammerkór Áskirkju 2007–2017. Hann kennir kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands og starfaði sem kórstjóri við Íslensku Óperuna 2016–2023.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

