© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
14. október
Miðaverð frá
6.990 kr.




Halldór Eldjárn heldur tónleikasýningu í Tjarnarbíói. En hvað er tónleikasýning? Tjah, annað hvort eru þetta óhefðbundnir tónleikar, eða mjög skrýtin leiksýning – þú mátt velja. Í sýningunni ætla ég um víðan völl og reyni að svara í eitt skipti fyrir öll spurningunni: „Hvað ert þú að gera þessa dagana?“. Á sýningunni má búast við að sjá nýjar uppfinningar, heyra frumflutning á glænýrri tónlist og í fyrsta skipti í næstum hundrað ár verður leikið á mjög dularfullt íslenskt rafmagnshljóðfæri. Komdu ef þú þorir.

