Rebekka Blöndal - útgáfutónleikar

Fantasía – Vinnustofa Kjarvals

10. júní

Miðaverð frá

5.990 kr.

  Rebekka Blöndal - útgáfutónleikar  

  Í ljósi þess að önnur sólóplata Rebekku, Kannski... kemur út þann 25. maí næstkomandi er tilvalið að halda tónleika. Tónlistin er blanda af Pop/RnB og Jazzi, en lögin Kveðja, Hvað þú vilt og Kannski hafa fengið að hljóma í útvarpi og á streymisveitum.
Tónleikarnir fara fram þann 10. júní næstkomandi kl. 20 í Fantasíu, Vinnustofu Kjarvals við Austurvöll og verður platan flutt í heild sinni.

Hljómsveit kvöldins skipa:

Steingrímur Teague - Píanó
Andri Ólafsson - Raf- og kontrabassi
Ari Árelíus - Rafgítar
Magnús Tryggvason Eliassen - Trommur
Sigurður Flosason - Saxafónn og bassa klarinett

Sigríður Theódóra, upprennandi lagasmiður og tónlistarkona mun koma fram ásamt sínu bandi og taka nokkur lög til upphitunar.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger