© 2026 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
6 sýningar
Miðaverð frá
7.200 kr.




Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna, bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Í hlutverkum Franks og Katarínu eru Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir en nágranna þeirra leika þau Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring.
Höfundur: Lars Norén
Þýðing: Hlín Agnarsdóttir
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Leikarar:
Haraldur Ari Stefánsson
Hilmir Snær Guðnason
Íris Tanja Flygenring
Vala Kristín Eiríksdóttir

