© 2026 Tix Miðasala
Egilsbúð Neskaupstað
•
5. júní
Miðaverð frá
2.900 kr.




glott.fest
glott.fest eru kvöldtónleikar fyrir ungt fólk, en opin öllum aldurshópum yfir 18 ára. Tónleikarnir eru haldnir í anda grasrótar og framsækinnar tónlistar þar sem ungir, skapandi og upprennandi listamenn skapa kúl og örvandi andrúmsloft sem hvetur til þátttöku og gleði.
Á sviðinu í ár koma fram Lottó, Alaska1867, CYBER og DJ Mellí. Line-upið blandar saman listafólki með tengingar við svæðið og rísandi nöfnum að sunnan í einstöku kvöldi sem fangar ferska strauma í íslensku tónlistarsenunni.
glott.fest er hluti af Innsævi, tvíæringi og lista- og menningarhátíð Fjarðabyggðar sem fer fram dagana 1.–20. júní. Innsævi sameinar listir, menningu og samfélag í fjölbreyttri dagskrá um allt sveitarfélagið og leggur áherslu á skapandi starf, samveru og þátttöku heimafólks og gesta.
Tónleikarnir fara fram 5. júní. Hurðir opna kl. 20:00 og dagskrá stendur til kl. 23:00. Að tónleikum loknum tekur við eftirpartý á Beituskúrnum með DJ Mellí frá kl. 23:00 og frameftir nóttu.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við sjómannadagshelgina í Neskaupstað og með stuðningi frá Hildibrand og SÚN. Á laugardagskvöldinu verður einnig dansleikur þar sem miðasala fer eingöngu fram við hurð og miðaverð er 3.900 kr.
Nánari upplýsingar um dagskrá Innsævis má finna á samfélagsmiðlum Menningarstofu, @menningarstofa á Facebook og Instagram.
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð

