Valgeir Guðjónsson heiðraður

Dægurflugan

4. október

Sala hefst

22. maí 2026, 07:00

(eftir 1 viku)

Valgeir Guðjónsson er einn ástsælasti lagahöfundur þjóðarinnar og lög hans skipta hundruðum. Landslið söngvara og hljóðfæraleikara hefur verið kallað til leiks og mun flytja sýnishorn af mörgum hans bestu og vinsælustu lögum og varpa þannig ljósi á glæsilegan og litríkan feril tónskáldsins.

Hver þekkir ekki Popplag í G-dúr, Tætum og tryllum, Stella í orlofi, Slá í gegn, Sirkus Geira smart, Bráðabirgðabúgí, Íslenskir karlmenn, Bara ég og þú, Ekki segja góða nótt, Vikivaki og fleiri og fleiri.

Fjöldinn allur af lögum Valgeirs verða flutt sem eiga eftir að lifa ódauðlegu lífi, hvort sem þau koma af lagalistum Stuðmanna, Spilverks; úr leikhúsi eða bíó. Að ekki sé minnst á lög af sólóplötum hans. Þetta er tónlist sem fylgt hefur Íslendingum í áratugi og mun.

Við heiðrum Valgeir Guðjónsson og þökkum fyrir allar þær gleðistundir sem hann hefur gefið okkur í gegnum tíðina með tónlist sinni.

Hljómsveitarstjóri:
Jón Ólafsson

Söngur:
Daníel Ágúst
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Diddú
Sigurður Guðmundsson
Hildur Vala
Valdimar Guðmundsson

Listræn ráðgjöf:
Sigurður Bjóla
Ásta Kristrún

Umsjón:
Dægurflugan ehf.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger