© 2026 Tix Miðasala
Akranes
•
4. júlí
Miðaverð frá
16.990 kr.




Tónlistarhátíðin, eða réttara sagt karnivalið, Lopapeysan hefur verið haldin fyrstu helgina í júlí á Írskum dögum síðan árið 2004. Það sem eitt sinn var stærsta sveitaball landsins hefur þróast í eitt stærsta og glæsilegasta tónlistarkarnival Íslands — upplifun þar sem tónlist, stemning og gleði renna saman í eina risastóra veislu.
Á síðasta ári komu fram 18 atriði, auglýst og óauglýst, á einu kvöldi. Dagskráin skiptist á þrjú ólík svið sem hvert um sig hefur sinn einstaka karakter:
Sementssviðið
Risastórt útisvið staðsett við höfnina, undir hinum stórbrotnu sementstönkum. Hrár iðnaðarandi mætir rafmagnaðri stemningu og skapar umgjörð sem þú finnur hvergi annars staðar.
Bubbi Morthens
Skálmöld
Friðrik Dór
XXX Rottweiler
Guinness-tjaldið
Í ár verður dagskráin sett upp sem óður til gömlu sementsskemmunnar þar sem Lopapeysan var haldin á sínum fyrstu árum. Þar mun Stuðlabandið taka á móti fjölda gesta og óvænt augnablik verða til. Þetta er sviðið þar
sem allt getur gerst.
Birgitta Haukdal
Helgi Björnsson
Stuðlabandið
Bríet
Emmsjé Gauti
Sirkustjaldið
Heimili rappsins, partístemningarinnar og tryllingslegra takta. Frá því að Sirkustjaldið bættist við hátíðarsvæðið hefur stemningin farið á næsta level — og það verður engin leið til baka.
En Lopapeysan er miklu meira en tónleikar. Á svæðinu finnur þú fjölbreytta afþreyingu, veitingasvæði, tívolí og bari víðs vegar um 14.000 fm hátíðarsvæði þar sem gleðin ræður ríkjum fram á nótt.
Lopapeysan heldur áfram að þróast ár frá ári með eitt markmið í huga: að skapa stærri, glæsilegri og eftirminnilegri upplifun fyrir alla sem mæta. Smá rómantík fylgir auðvitað alltaf með.
Kristmundur Axel
Herra Hnetusmjör
Elvar
Daniil
Aron can
Ingi Bauer
Brekkusöngur við Akranesvöll
Við Akranesvöll býðst gestum að hita upp með brekkusöng áður en haldið er inn á Lopapeysusvæðið við Faxabraut. Líkt og undanfarin ár verða það Hreimur og Magni sem leiða brekkuna með sannkallaðri brekkustemningu kl 19:15
Nánari upplýsingar má finna áLopapeysan.is
Það er 20 ára aldurstakmark, það er árið sem gildir.

