© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
19. nóvember
Miðaverð frá
9.900 kr.




CELINE DION NOSTALGIA í Norðurljósum fimmtudaginn 19. nóvember
Celine Dion er ein áhrifamesta söngkona samtímans og rödd hennar hefur snert hjörtu milljóna fólks um allan heim. Celine Dion er miklu meira en bara söngkona; hún er afl sem breytti ásýnd popptónlistar að eilífu! Með ótrúlegt raddsvið og tæknilega fullkomnun að vopni, kenndi hún heiminum hvað það þýðir að syngja af hreinni ástríðu auk þess sem hún ruddi brautina fyrir kraftmiklar dívur nútímans og sýndi að tónlist getur brúað öll tungumálabil, enda hafa plötur hennar selst í um 250 milljón eintökum á heimsvísu.
Celine hafði mótandi áhrif á tónlistarbransann með því að sameina klassískan glæsileika og nútímalegt popp. Hún gerði stórkarlalegar ballöður að listgrein og breytti því hvernig við upplifum tónleika. Tónlist Celine Dion fær nýtt líf í Norðurljósasal Hörpu þann 19. nóvember fær þegar Guðrún Árný flytur hennar þekktustu lög af innlifun og hlýju. Gestir mega eiga von á kvöldi fylltu af nostalgíu, gleði og stórum augnablikum með lögum á borð við My Heart Will Go On, The Power of Love, Because You Loved Me, It’s All Coming Back to Me Now og To Love You More.
Það er fáum betur treystandi fyrir þessu vandasama verkefni en henni Guðrúnu Árnýju. Guðrún hefur þá einstöku hæfileika til að tengjast áheyrendum sínum á svo persónulegan og hlýjan hátt að enginn fer ósnortinn heim. Með sína kraftmiklu en jafnframt silkimjúku rödd, færir hún okkur lög Celine Dion af þeirri einlægni og gleði sem henni einni er lagið. Hún nálgast viðfangsefnið af mikilli virðingu en setur líka sinn eigin sjarma á flutninginn sem tryggir að kvöldið verður bæði hátíðlegt og ógleymanlegt.
Til þess að fullkomna kvöldið verður frábær hópur tónlistarfólks með Guðrúnu á sviðinu.
Hljómsveit:
Vignir Þór Stefánsson, tónlistarstjórn og píanó
Helgi Reynir Jónsson, gítar og hljómborð
Grétar Lárus Matthíasson, gítar
Róbert Þórhallsson, bassi
Jón Geir Jóhannsson, trommur
Bakraddir:
Ragna Björg Ársælsdóttir
Íris Lind Verudóttir
Hlökkum til að sjá þig í Norðurljósasal Hörpu þann 19. nóvember kl. 20:00

