© 2026 Tix Miðasala
Sena Live
•
27. september
Sala hefst
15. maí 2026, 10:00
(eftir 3 daga)




ALMENN SALA HEFST 15. MAÍ KL. 10
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 14. MAÍ KL. 10
SKRÁNING Í HANA HÉR
Jim Jefferies kemur með nýja sýningu “Son of a Carpenter” í Eldborg, Hörpu 27. september
Ef þú móðgast auðveldlega, þá er þetta líklega ekki sýning fyrir þig.
Jim Jefferies hlífir engum og er líklega beittasti uppistandari heims í dag. Hann er þekktur fyrir að segja það sem aðrir bara hugsa. Með hráum, hreinskilnum og kolsvörtum húmor tekur hann á stórum og litlum málum, daglegum athöfnum sem og hitamálum - og enginn sleppur.
Þetta verður kvöld þar sem allt er undir og ekkert er heilagt.
UM JIM
Jim Jefferies er ástralskur grínisti, leikari og handritshöfundur sem hefur byggt upp alþjóðlegan feril í því að vera óþægilega hreinskilinn og ótrúlega fyndinn á sama tíma.
Frá því að fyrsta uppistandssýning hans Contraband kom út árið 2008 hefur hann gefið út tíu sýningar, þar á meðal þá nýjustu, Two Limb Policy (2025) á Netflix. Þar fer hann yfir allt frá undarlegum yfirvaraskeggjum til „vandamála“ gagnkynhneigðra karla og útskýrir af sinni alkunnu kaldhæðni hvers vegna leiklist sé ekki alvöru vinna.
Hann bjó til, framleiddi og lék sjálfur í þáttunum Legit og stýrði svo eigin þáttum, The Jim Jefferies Show, á Comedy Central sem gekk í þrjár seríur. Árið 2019 var hann valinn uppistandari ársins á Just for Laughs Festival, sem segir sitt.
Í dag má sjá hann stýra raunveruleikaþættinum The Snake á FOX og hann leikur einnig í kvikmyndinni Him eftir Jordan Peele, sem kom út árið 2025.
MIÐAVERÐ:
Úrvals: 15.990 (fjólublátt á mynd)
A svæði: 13.990 (rautt á mynd)
B svæði: 11.990 (blátt á mynd)
C svæði: 9.990 (grænt á mynd)
D svæði: 7.990 (gult á mynd)
E svæði: 5.990 (bleikt á mynd)
Mynd af sal hér
Umsjón: Sena Live

