© 2026 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
13. júní
Miðaverð frá
0 kr.




Rocky Horror - Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins! Villt og ógleymanleg kvöldstund í Þjóðleikhúsinu
Rocky Horror hefur um áratugaskeið verið svo kallað "kultklassík" víða um heim. Verkið sameinar rokktónlist, svartan húmor og ögrandi karaktera með vafasamt siðferði og býður því áhorfendum inn í ófyrirsjáanlegan og litríkan heim.
Sagan hefst þegar unga parið Brad og Janet lenda í óveðri og leita skjóls í dularfullum kastala. Þar mæta þau hinum sérvitran og óútreiknanlega Dr. Frank-N-Furter og hans föruneyti sem draga unga þau inn í heim þar sem mörk hins eðlilega og óvenjulega hverfa á augabragði.
Uppfærsla Leikfélags Húsavíkur vakti sérstaka athygli fyrir metnaðarfulla nálgun á öllum sviðum. Sýningin var valið Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og stígur því nú á Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu. Sú viðurkenning endurspeglar ekki aðeins listrænan metnað sýningarinnar heldur einnig þann kraft og eldmóð sem býr yfir íslensku áhugaleikhúsið. Með þessari uppfærslu sýndi Leikfélag Húsavíkur að það er vel hægt að skapa stórar og eftirminnilegar leiksýningar utan stærstu leikhús landsins - sýningar sem sameina fagmennsku, sköpunargleði og sterka samfélagslega þátttöku.
Rocky Horror er því ekki aðeins söngleikur, heldur upplifun sem hefur í gegnum tíðina skapað sér einstakan sess í hjörtum leikhúsunnenda um allan heim. Uppfærsla Leikfélags Húsavíkur staðfesti þann töfrakraft sem verkið býr yfir og skilaði sýningu sem lengi verður minnst fyrir djörfung, húmor og smitandi leikgleði.Grípandi kynningarsetning um verkiðRocky Horror - Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins! Villt og ógleymanleg kvöldstund í ÞjóðleikhúsinuLeikarar og hlutverkDr. Frank-N-Furter - Arnþór Þorsteinsson
Janet Weiss - Bergdís Björk Brandr Jóhannsdóttir
Brad Majors - Einar Óli Ólafsson
Riff Raff - Hjalti Karl Jónsson
Magenta - Hrefna Ósk Davíðsdóttir
Kólumbía - Katla Marín Þorkelsdóttir
Rocky - Hörður Bjarni Bergþórsson
Edda - Margrét Inga Sigurðardóttir
Dr. Scott - Margrét Inga Sigurðardóttir
Sögumaður - Valgeir Sigurðsson
Transylvanískir útsendarar - Aþena Marey Ingimarsdóttir, Daníel Máni Einarsson, Eggert Þórarinsson, Jenný Birna Þórisdóttir, Karítas Embla Kristinsdóttir og Katla María Guðnadóttir
Listrænir stjórnendurLeikstjóri - Eyvindur Karlsson
Aðstoðarleikstjóri - Karen Erludóttir
Ljós og hljóð - Arnþór Þórsteinsson, Unnur Lilja Erlingsdóttir og Hafliði Emil Barðason
Búningar og props - Helga Sigurjónsdóttir
Sviðsmynd - Helga Sveinbjörnsdóttir og Heiðar Smári Þorvaldsson
Smink - Aþena Marey Ingimarsdóttir
Hár - Skarphéðinn Birgisson

