Úlfur Eldjárn í Fríkirkjunni

Fríkirkjan í Reykjavík

6. september

Miðaverð frá

7.990 kr.

Tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn ætlar að halda stórtónleika í Fríkirkjunni þann 6. september 2026 - klukkan 20:00

Tónleikarnir tengjast ekki á nokkurn hátt þeirri staðreynd að Úlfur verður fimmtugur nokkrum dögum áður, enda væru þeir þá auglýstir sérstaklega sem „afmælistónleikar“, sem þeir eru ekki. Engu að síður verða tónleikarnir einstakir og veglegir í alla staði. Öllu verður tjaldað til og ekkert til sparað - já við erum að tala um strengi, tæknibrellur og stórkostlega gesti - en allt það verður auglýst betur síðar.*

Á þessum tónleikum verður aðaláherslan á nýtt efni sem Úlfur hefur verið að dunda sér við að semja fyrir píanó, elektróník, strengi og önnur hljóðfæri. Væntanleg er heil breiðskífa með þessari tónlist en hægt er að fá forsmekk með því að hlusta á lagið “Continuum” sem kom út 2023 og skartar Ólafi Birni Ólafssyni á trommur. Einnig verður rifjað upp eitthvað eldra efni úr fyrri verkefnum Úlfs, t.d. Innsæi, The Aristókrasía Project, Reykjavík GPS og kannski „Hvar er Jón?“ sem hlaut á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin. Nú svo er aldrei að vita nema að orgel Fríkirkjunnar verði virkjað til að leika lagið Rotations af plötunni Field Recordings: Music from the Ether.

Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið Úlf, þá hefur hann starfað sem tónlistarmaður frá unga aldri og t.d. verið iðinn við að gera tónlist fyrir kvikmyndir, sjónvarp, leikhús og aðra miðla. Í sólóverkefnum sínum fer hann oft óvenjulegar leiðir, eins og í gagnvirka verkinu Strengjakvartettinum endalausa, Reykjavík GPS (staðsetningartengt tónverk fyrir miðbæ Reykjavíkur) og Hamraborginni - óður til hávaða, sem var bæði kvikmynd og tónverk fyrir 7 trommuleikara. Úlfur hefur samið verk fyrir Caput og Cauda collective og gert útsetningar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann er jafnframt einn af stofnendum Orgelkvartettsins Apparat (Apparat Organ Quartet) og hefur starfað með listamönnum á borð við Jóhann Jóhannsson, Mugison, Valdimar, Ham, Vigdísi Hafliðadóttur og Halldóri bróður sínum Eldjárn svo eitthvað sé tínt til.

Úlfur er oftar en ekki fastur við tónlistarstörf í neðanjarðarhljóðveri sínu og kemur afar sjaldan upp á yfirborðið. Þetta er því afar sjaldgæft og kærkomið tækifæri til að njóta tónlistar hans við kjöraðstæður í Fríkirkjunni. Tryggið ykkur miða strax ef þið getið!

*Tónleikarnir verða veglegir, en reyndar ekki allan tímann, því sum lögin eru svo smágerð og brothætt að þau kalla á svokallaða „minna er meira“ nálgun. Í þeim tilfellum væri kannski réttara að tala um að ENGU verði tjaldað til og ALLT til sparað.

**Úlfur er líka í heimsfrægum saxófóndúett: Saxa & Sachsa sem gerði samnefnda þætti fyrir Rás 1.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger