© 2026 Tix Miðasala
Neskirkja
•
16. maí
Miðaverð frá
3.000 kr.




Lífsins lög
SALAR sveitin er píanókvintett sem helgar sig flutningi norrænar tónlistar þar sem raddir norðursins fá að hljóma í allri sinni fegurð.
Tónskáld tónleikanna eru úr öllum áttum, Malling frá Danmörku, Andrée frá Svíþjóð og okkar eigin Íslensku tónskáld, Jón Ásgeirsson og Daníel Bjarnason - en Rita Porfiris, víóluleikari sveitarinnar, útsetti verk Daníel Bjarnasonar, Air to Breath fyrir strengjakvartett.
Nafn SALAR sveitarinnar, er myndað úr upphafsstöfum flytjenda – Sigurgeirs, Ásu, Liams, Antons og Ritu – en ber jafnframt merkinguna „leiðtogi“ á persnesku. Sú merking endurspeglar vel stöðu hvers og eins innan tónlistarsenunnar, þar sem þau hafa gegnt lykilhlutverkum sem leiðandi hljóðfæraleikarar og konsertmeistarar í virtum hljómsveitum hér heima, í Evrópu og Bandaríkjunum.
Flytjendur:
Anton Miller, fiðla
Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir Skelton, fiðla
Rita Porfiris, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Liam Kaplan, píanó
Efnisskrá:
Píanókvartett eftir Otto Malling (1848 - 1915), flutt af Antoni, Ritu, Sigurgeiri og Liam
Tvær rómönsur eftir Elfrida Andreé (1841 - 1926), flutt af Ásu og Liam
Air to Breath eftir Daníel Bjarnason (f. 1979), flutt af Antoni, Ásu, Ritu og Sigurgeiri
Píanókvintett eftir Jón Ásgeirsson (1928 - 2025)
Almennt miðaverð er 4000 kr. en er 3000 kr. fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn. Frítt er fyrir unglinga og börn.

