© 2026 Tix Miðasala
Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli
•
29. - 31. maí
Miðaverð frá
4.900 kr.




VOX Rangárþing - ÁST
VOX Rangárþing kynnir ÁST, kraftmikla tónleika sem fjalla um ástina í öllum sínum myndum.
VOX Rangárþing er líflegur kór á Suðurlandi, skipaður um 50 söngvurum af ólíkum uppruna og þjóðernum. Margir þeirra höfðu litla sem enga reynslu af söng áður, en saman skapa þau einstaka sýningu þar sem tónlist, frásögn og tilfinningar fléttast saman.
ÁST er ekki hefðbundnir tónleikar heldur ferðalag í gegnum mismunandi birtingarmyndir ástar: gleði, þrá, sorg, tengsl og von. Á efnisskránni eru þekkt alþjóðleg lög og íslensk tónlist, útsett sérstaklega fyrir kórinn.
Sýningin er í leikstjórn Gábor Tengely, sem er þekktur fyrir sjónræna nálgun og störf sín í leikhúsi og brúðulist í Ungverjalandi, og tónlistarstjórn og framleiðsla er í höndum Arilíus Marselínuson.
Með áherslu á stemningu, sjónræna upplifun og einlægni skapar VOX Rangárþing upplifun sem fer út fyrir hefðbundna kórtónleika.
Komdu og upplifðu kvöld fullt af tónlist, tilfinningum og tengingu.
Á staðnum verður boðið upp á úrval af léttum veitingum og óáfengum drykkjum, auk sérvalins varnings tengdum viðburðinum.
Allur ágóði af miðasölu, veitingum og sölu á takmörkuðu upplagi af VOX taupokum, sem og sala á 10 frumverkum úr ÁST – ljósmyndum/málverkum eftir Arilíus Marselínuson og Gunnhildur Þórunn Jónsdóttir, sem listamennirnir hafa gefið kórnum, rennur til að styðja kórinn fyrir næsta tímabil og fjármagna sýningar okkar í Tjarnarbíó í október.
Almennir miðar: 4.900 ISK
VIP miðar: 9.900 ISK
Í VIP miða er innifalið:
„LOVE“ óáfengur kokteill
„Er þetta Ást?“ charcuterie spjót
„Like a Prayer“ kökupinni
Allt útbúið af kokkinum Andrej Ivetić
Kokteill frá Filip Kalemba

