Shygirl - IA26 Special Event

Harpa

4. nóvember

Sala hefst

22. maí 2026, 10:00

(eftir 5 daga)

ALMENN MIÐASALA HEFST 22. MAÍ KL. 10.00
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 21. MAÍ KL. 10:00
SKRÁNING Í HANA HÉR

FORSÖLUR FYRIR IA PASSAHAFA ERU 20. MAÍ KL. 10
10% AFSLÁTTUR FYRIR ALMENNA IA26 PASSAHAFA
20% AFSLÁTTUR FYRIR PLUS IA26 PASSAHAFA

Iceland Airwaves 26 Special event

Shygirl kemur með eitt heitasta “club-show” Evrópu til Íslands. Sérstakur IA26 viðburður í Silfurbergi, Hörpu þann 4. nóvember.

Shygirl hefur á örfáum árum orðið eitt heitasta nafnið í nýrri bylgju tilraunapopps og club-tónlistar. Með útgáfum á borð við ALIAS is ME, Club Shy og Nymph hefur Shygirl fest sig í sessi sem eitt mest spennandi nafn samtímans.Hún hefur unnið með fjölmörgum listamönnum, gerði m.a. 365 með CharlieXCX. Einnig hefur hún unnið með Troye Sivan, SOPHIE, FKA twigs, Arca, PinkPantheress og okkar eigin Björk.

Joey Christ og Alaska1867 sameinast og sjá um að rífa stemminguna í gang áður en Shygirl mætir á svið!

Þetta verður standandi partý og miðaverð er 16.990 kr.

Kvöldið fyrir þau sem geta ekki beðið og vilja upplifa Airwaves stemminguna strax á miðvikudegi!

Umsjón: Iceland Airwaves

Um Shygirl
Blane Muise eða Shygirl er breskur rappari, DJ, söngkona og lagahöfundur. Hún er auk þess meðstofnandi NUXXE útgáfu og listahóps. Tónlist hennar er kraftmikil blanda af tilraunakenndri klúbbatónlist, hip-hopi, house og raftónlist. Hún fer óhrædd yfir mörk og mótar sinn eigin hljóðheim.

Hún vakti fyrst athygli með fyrstu útgáfum sínum og EP-plötunni Cruel Practice (2018), og fylgdi því eftir með Alias (2020) þar sem hún kynnti til sögunnar sinn sérstaka, sjónræna stíl sem byggir á alter-ego persónum. Með fyrstu breiðskífunni Nymph (2022) færði hún sig enn frekar inn í dans- og klúbbsenuna og á EP-plötunni Club Shy (2024) dýpkar hún þá nálgun enn frekar sem upphaf á nýjum kafla í listrænni þróun sinni.

Undanfarin ár hefur Shygirl styrkt stöðu sína á alþjóðavettvangi. Hún hefur verið í samstarfi með og hitað upp fyrir Charli XCX og Troye Sivan á tónleikaferðum. Hún er ein af þeim röddum sem eru að móta framtíð klúbb- og popptónlistar. Er  beinskeytt og óhrædd við að gera tilraunir í tónlistinni algjörlega á eigin forsendum.

Um Joey Christ
Síðan Joey Christ steig fyrst inn í íslensku rappsenuna árið 2017 hefur hann rutt eigin farveg með sínum einkennandi stíl og auga fyrir samstörfum. Joey er engum líkur.

Um Alaska1867
Á stuttum tíma hefur Alaska1867 stimplað sig inn sem einn mest spennandi tónlistarmaður okkar samtíma. Hljóðheimurinn er hrár og draumkenndur með greinilegu áhrifum úr raf- og öndergránd senunni.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger