© 2026 Tix Miðasala
Tónabíó, Skipholt 33
•
29. maí
Miðaverð frá
6.900 kr.




Ukulellur í Tónabíó
Ukulellur halda vortónleika í Tónabíói föstudaginn 29. maí kl. 20 og flytja gömul og ný lög sem rekja sögur miðaldra lesbía. Þar segja Ukulellur frá því hvernig lífið var í gamla daga, hvað breyttist og hvenær, hverjar kynntumst hverjum, hvaða fólk lagði stein í götu ástarinnar, hvernig brautir voru ruddar og margt, margt fleira. Ukulellur halda sögunni til haga, taka hraustlega á bakslagi en taka samt engu of hátíðlega!
RVK Bruggfélag hefur komið sér vel fyrir í gamla Tónabíói í Skipholti 33 í Reykjavík. Gamli bíósalurinn, sem seinna var bingósalur, hentar Ukulellum sérstaklega vel til að taka á móti gestum.
RVK Bruggstofan er opin frá kl 13:00 til miðnættis.
Miðaverð er 6.900 kr.
Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

