Besti vinur minn Súperman

Afturámóti ehf

2. - 11. júlí

Miðaverð frá

0 kr.

Besti vinur minn Súperman

Hin fimm ára Melkorka getur ekki beðið eftir því að byrja í skóla, það eina sem stendur í vegi fyrir henni er að hún kann enn ekki að lesa. Þarf maður ekki annars að vera búinn að læra það áður en skólinn hefst? En þegar ofurhetjan Súperman birtist óvænt og lofar henni að fá uppfylltar þrjár óskir hefst fjörið. Saman halda þau á vit ævintýranna og kynnast skrautlegum persónum sem kenna þeim ýmislegt um lífið. Hér er á ferðinni fjörug ný barnasýning með frumsömdum lögum eftir JóaPé og Króla og leikhópinn, tilvalin fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra. 

Sýningin er með afslöppuðu móti, þ.e. ljós og hljóðtækni eru í lágmarki, og hentar því vel fyrir unga leikhúsgesti. 

Sýnd í Afturámóti í Háskólabíói nú í sumar. 

Framleiðsla Afturámóti 

Leikarar 

  • Elva María Birgisdóttir 

  • Helga Salvör Jónsdóttir 

  • Hrafnhildur Ingadóttir 

  • Katla Þórudóttir Njálsdóttir 

  • Mímir Bjarki Pálmason 

  • Salka Gústafsdóttir 

  • Stefán Kári Ottósson 

Leikstjórn 

  • Guðjón Ragnarsson 

Handrit, lög og textar: 

  • Katla Þórudóttir Njálsdóttir 

  • Kristinn Óli S. Haraldsson 

  • Salka Gústafsdóttir 

  • Sólbjört Sigurðardóttir 

  • Stefán Kári Ottósson 

Útsetning laga 

  • Jóhannes Damian Patreksson 

Dans- og sviðshreyfingar 

  • Sólbjört Sigurðardóttir 

Framleiðandi 

  • Elva María Birgisdóttir 

Veggspjald 

  • Katla Þórudóttir Njálsdóttir

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger