© 2026 Tix Miðasala
Tónabíó, Skipholt 33
•
13. maí
Miðaverð frá
5.000 kr.




Ljótikór leiðir áheyrendur í ferðalag inn í einstakan söngheim Magnúsar Eiríkssonar.
Miðvikudaginn 13. maí kl. 20 heldur Ljótikór tónleika í Tónabíó tileinkaða tónskáldinu og lagasmiðnum Magnúsi Eiríkssyni, sem lést í byrjun þessa árs. Verkefnið hefur verið lengi í undirbúningi hjá kórnum og markmiðið var ferðalag inn í magnaðan söngheim Magnúsar.
Á efnisskránni verða lög Magnúsar í glænýjum útsetningum, en jafnframt verða rifjaðar upp minningar sem tengjast lögum hans og þeirri lífsreynslu og tilfinningum sem textar hans bera með sér. Tónleikarnir verða þannig ekki aðeins flutningur á stórbrotnum og ástsælum lögum, heldur einnig samtal við verk Magnúsar og þær minningar sem tónlist hans vekur.
Ljótikór hefur skapað sér sérstöðu fyrir óhefðbundna og lifandi tónleikaupplifun, þar sem tónlist, sviðsetningar og stemning mynda eina heild og þessir tónleikar verða engin undantekning á því.
Allar útsetningar eru eftir Einar Jónsson, sem stýrir kórnum ásamt Nönnu Hlíf Ingvadóttur. Hljóðfæraleikarar eru Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og Örn Ýmir Arason bassaleikari.
Sviðssetning er í höndum Vigdísar Jakobsdóttur og Ilmur María Stefánsdóttir hefur yfirumsjón með útliti tónleikanna.
Ath. Viðburðurinn er sitjandi en ekki er selt í númeruð sæti. Við hvetjum því gesti til að mæta tímanlega.

