© 2026 Tix Miðasala
Langholtskirkja
•
23. maí
Miðaverð frá
2.900 kr.




Útgáfutónleikar kammerkórsins Huldar
Í tilefni af útgáfu fyrstu plötu sinnar, ‘Í fossgljúfri’, efnir kammerkórinn Huldur til stórtónleika í Langholtskirkju 23. maí n.k. klukkan 14:00. Kórinn mun flytja dagskrá stútfulla af nýrri íslenskri kórtónlist, þorri hennar eftir ung tónskáld innan kórsins. Ekki verður einungis boðið upp á ljúfa tóna því gert verður stutt hlé á tónleikunum þar sem gestir geta fengið sér kaffibolla og aðrar léttar veitingar að kostnaðarlausu í safnaðarheimili kirkjunnar. Almennt miðaverð er 3900 kr., nemendur og öryrkjar fá miðann á 2900 kr. og börn undir 13 ára fá frían aðgang. Hægt verður að kaupa geisladisk á tónleikunum og fylgir honum veglegur bæklingur með umfjöllun um ljóðin og þjóðsögurnar á disknum.
Diskurinn, sem ber yfirskriftina Í fossgljúfri, hefur að geyma hinn draumkennda íslenska sagnaheim. Þar bregður fyrir tröllum, afturgöngum, afskornum tám og andlitum á glugga; álfareiðum, reiðum álfum og ástum manna og álfa á milli. Tónleikarnir koma í kjölfar tónleikaferðar kórsins í tilefni útgáfu hljómdisksins. Ferðin hefst í Stykkishólmi 14. maí. Síðan heldur kórinn norður og heldur tónleika í Akureyrarkirkju föstudaginn 15. maí. Þá eru tónleikar í Borgarneskirkju 17. maí og loks eru það sjálfir útgáfutónleikarnir, nær heimahögunum, í Langholtskirkju laugardaginn 23. maí.
Komið og hlýðið á nýja tóna!
Hlökkum til að sjá sem flesta!
UM KÓRINN:
Kammerkórinn Huldur var stofnaður af Hreiðari Inga Þorsteinssyni haustið 2021. Á skammri ævi hefur kórinn haldið fjölda tónleika, að jafnaði ferna á ári, og frumflutt hátt í fimmtíu ný íslensk kórverk. Hann hefur einnig verið dýrmætur vettvangur fyrir ungt fólk til að spreyta sig á tónsmíðum, ljóðagerð, einsöng og kórstjórn. Huldur hefur komið fram á ýmsum hátíðum: Unglist, Hátíðni á Borðeyri, kammertónlistarhátíðinni Seiglu, Óperudögum, Sönghátíð í Hafnarborg, Myrkum músíkdögum og Ungkórahátíð Evrópu (EJCF) sem haldin er annað hvert ár í Basel. Kórinn hefur einnig unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og stigið á kórpalla með Graduale Nobili, Ægisif, Kór Hallgrímskirkju, Dómkórnum og svo vitaskuld Kór Menntaskólans við Hamrahlíð.
En þetta nafn, hvað á það að þýða? Huldurin er kynjavera úr íslenskri þjóðtrú sem dvelur í fossum, lækjum eða jafnvel á hafsbotni og merkir nafnið ‘hin hulda’. Vætturin er mönnum frekar til meins en gagns. Ein slík frásögn finnst í þjóðsagnasafni Ólafs Davíðssonar. Þar eru munnmæli frá Rangárvallasýslu að menn tryðu að vættur, huldurin, byggi bak við fossa. Móðir sögumanns trúði því að huldur tæki menn sem væru úti seint á kvöldin við fossinn í Tjörvastaðalæk sem rennur í Ytri-Rangá. Sama trú á huldir í fossum var á Seljalandsfossi og austur í Skaftafellssýslu. Eflaust fannst þessi þjóðtrú víðar um land enda hefur vætturin verið yrkisefni margra íslenskra skálda í gegnum tíðina. Þar má nefna tvö ljóð sem koma fyrir á disknum, þ.e. Huldur eftir Grím Thomsen og Bláir eru dalir þínir eftir Hannes Pétursson. Hjá Grími dvelur hún djúpt í hafi og knýr öldur fram með langspili, fiðlu og söng. Í ljóði Hannesar um dalina bláu má hins vegar finna huldina í fossgljúfrinu líkt og í þjóðtrúnni. Þar greypir hún sólarljósið sjálft í vatnsdropa fossins – „saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna“.

