© 2026 Tix Miðasala
Geimsteinn
•
21. maí
Miðaverð frá
6.000 kr.




Geimsteinn 50 ára - Klassart.
Afmælisveislan heldur áfram í Geimsteini og næst á svið er Klassart.
Systkinin frá Sandgerði, Smári og Fríða, taka hús á Geimsteinsbræðrunum og fara í gegnum útgáfuferil sinn. Talið verður í lög eins og Örlagablús, Bréf frá París og Gamla grafreitinn og farið í saumana á þeim.
Klassart gaf út þrjár plötur hjá Geimsteini sem innihalda strangheiðarlega tónlist og lög sem segja sögur er fólk tengir við.
Þetta verður klárlega yndisleg, skemmtileg og áhrifarík kvöldstund.
Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

