© 2026 Tix Miðasala
Langholtskirkja
•
21. maí
Sala hefst
4. maí 2026, 10:00
(eftir 4 daga)




Vocal Project - með hristivörn
Tíundi áratugurinn var tími mikillar breiddar og sviptinga í tónlist. Til þess að fara vel á dýptina horfir Vocal Project á G-in þrjú:
Gellupopp
Grunge
og, til þess að flytja okkur milli pólanna, Geislaspilari, að sjálfsögðu með hristivörn.
Undir traustri stjórn Gunnars Ben (úbbs, fjórða G-ið, afsakið) ferðast kórinn um víðan völl níunnar, frá Alice in Chains til Spice Girls, frá Alanis Morissette til Jamiroquai og svo Björk, að sjálfsögðu.
Þemanu er viðhaldið af óhefðbundnum hljóðfæraleik í anda MTV Unplugged. Meðleikarar eru:
Jón Geir Jóhannsson
Kjartan Valdemarsson
Matti Kallio
Sam Pegg
Mætið í rifnum gallabuxum og köflóttri flannelskyrtu, kryddið upp líf ykkar og fyllið allt af ást, því Vocal Project býður í 90s partí!

